Aldur-er-bara-tala-1200x630

Aldur er bara tala

Aldur er bara tala er vefsíða þar sem þeir sem eldri eru hafa aðgang að fræðslu og ráðgjöf fagfólks sama hvar á landinu þeir búa. Á síðunni er hægt að nálgast upplýsingar um úrræði í heimabyggð, réttindamál og fá ráðgjöf, stuðningsviðtöl, t.d.vvegna einmanaleika. Bæði fræðsla og ráðgjöf eru veitt gegnum netið en einnig er boðið upp á 30 mínútna símaráðgjöf gegn gjaldi. Eftir ráðgjöfina er hægt að óska eftir ráðgjöf og samtalsmeðferð hjá félagsráðgjafa í gegnum vef fjarheilbrigðiskerfisins Kara Connect sem er vottað af Landlæknir. Vefurinn Kara Connect er á ensku. Markmið með vefsíðunni Aldur er bara tala er m.a. „að draga úr félagslegri einangrun og hafa jákvæð áhrif á heilsu og líðan með skemmtilegum og fræðandi greinum, fréttum og viðtölum“ eins og segir þar.

Vefsíðan Aldur er bara tala er í eigu Sólrúnar Erlu Gunnarsdóttur félagsráðgjafa. Sólrún er félagsráðgjafi að mennt en hefur einnig sótt ýmiss námskeið m.a um fjarheilbrigðisþjónustu og vinnumarkað framtíðarinnar og stundar nú diplomanám í öldrunarþjónustu á meistarastigi í Háskóla Íslands.

Skráð: 06.11.2021
Skip to content