Third Age 1200x631

Nám um þriðja æviskeiðið

Hugtakið þriðja æviskeiðið virðist hafa fests í sessi því í byrjun næsta árs hefst nám um æviskeiðið sem Opni háskólinn og sprotafyrirtækið Magnavita standa fyrir. Í náminu munu nemendur setja sér markmið fyrir æviskeiðið og skipuleggja innihaldsríkt líf. Lögð verður áhersla á andlega og líkamlega hreysti, félagsleg tengsl, gleði og virkni.

Námið spannar tvær annir vor- og haustönn 2023 og verður kennt einn dag í viku, þriðjudaga frá kl. 9:15 til kl. 15:00. Skráning í námið er þegar hafin og geta þeir sem eru á aldrinum 55 -75 ára sótt um. Hámarksfjöldi er 40 manns og greiðir hver nemandi kr. 780.000. Nánari upplýsingar um námið sem og nafn, netfang og símanúmer verkefnisstjóra þess er að finna á vef Opna háskólans, https://oh.ru.is/namskeid/magnavita/?plid=223965.

Skráð: 24.10.2022
Skip to content