Saga Vöruhússins
Saga Vöruhúss tækifæranna hefst með hugmyndinni á bak við BALL-verkefnið, Being Active through Lifelong Learning eða „Verum virk með ævinámi“ þegar unnið var að stefnumótun í hinum nýlega stofnuðu samtökum U3A Reykjavík, Háskóla þriðja æviskeiðsins, árið 2013. Verkefnishugmynd BALL miðaði að því að þróa leiðarvísi og leiðbeiningar um hvernig megi hefja undirbúning þróttmikils þriðja æviskeiðs sem fyrst. Hugmyndin varð síðan að evrópsku samstarfsverkefni með þátttöku þriggja U3A-eininga, U3A Reykjavík, UPUA í Alicante, Spáni, og LUTW í Lublin, Póllandi. Evris ses í Reykjavík fór með stjórn verkefnisins.
Sótt var um fjármögnun til Evrópusambandsins vorið 2014. Umsóknin fékk mjög góða umsögn, veittur var styrkur frá Erasmus+ áætluninni um fullorðinsfræðslu og verkefnið hófst í september 2014.
Að loknu árangursríku rannsókna- og þróunarsamstarfi BALL-verkefnisins voru niðurstöður þess, leiðbeiningar, birtar í bókinni „Til móts við þróttmikið þriðja æviskeið“ í september 2016. Bókin, ásamt nokkrum áfangaskýrslum, er aðgengileg á vefsíðu verkefnisins www.ball-project.eu á ensku – “Towards a Dynamic Third Age” og á heimatungumálum allra samstarsfaðila, íslensku, pólsku og spænsku.
BALL-leiðbeiningunum hefur verið dreift víða um heim og hefur þeim alls staðar verið vel tekið. BALL-verkefnið hlaut gæðaviðurkenningu Erasmus+ á sviði fullorðinsfræðslu í nóvember 2016. Í kjölfarið var Catch the BALL-verkefnið skilgreint og undirbúið árið 2016 með það að markmiði að koma niðurstöðum og leiðbeiningum BALL-verkefnisins í framkvæmd. Það má segja að verkefnið snúist um að grípa boltann sem hent var upp í BALL-verkefninu og halda honum á lofti.
Catch the BALL-verkefnið fékk framhaldsstyrk frá Erasmus+ áætluninni og hófst í desember 2016. Í þetta sinn komu nýir samstarfsaðilar að verkinu ásamt íslensku þátttakendunum U3A Reykjavík og Evris ses. Þessir þátttakendur voru Kaunas STP, Vísinda- og tæknigarður Kaunas, Litháen, og MBM, þjálfunar- og þróunarmiðstöð í Liverpool, Bretlandi.
Í Catch the BALL-verkefninu er tveimur af þremur áföngum leiðbeininga BALL-verkefnisins hrint í framkvæmd við lok verkefnistímabilsins í júní 2018. Sá þriðji, Vitundarvakning um mikilvægi þriðja æviskeiðsins, var ekki metin hæfur til styrks í flokki fullorðinsfræðslu.
Í fyrsta lagi má nefna Menntastofu tækifæranna, sem er námskeiðslýsing fyrir þá sem leiðbeina og aðstoða fólk sem vill uppgötva styrkleika sína, þarfir og þrár við undirbúning að „þróttmiklu þriðja æviskeiði“, Manual for Trainers and Facilitators
Í öðru lagi var Vöruhús tækifæranna hannað og útfært til þess að bjóða fólki úrval tækifæra til þess að skapa þróttmikið þriðja æviskeið.
Catch the BALL verkefnið var metið eftir að því lauk af sérstakri matsnefnd og fór hún sérstaklega lofsamlegum orðum um Vöruhús tækifæranna. Árið 2018 var Vöruhús tækifæranna svo valið í úrslitahóp í alþjóðlegri keppni Silver Eco and Aging Well um viðurkenningu fyrir verkefni sem miða að lausnum, þjónustu, nýsköpun og öðru því sem best getur leitt til farsællar öldrunar. Af 45 tilnefndum verkefnum hlutu þrjú viðurkenningu og átján önnur voru valin til úrslita, þeirra á meðal Vöruhús tækifæranna.
Vöruhúsið var skipulagt sem evrópskt vöruhús, með tengingar við vöruhús sem eru staðsett og starfa í löndum samstarfsaðilanna. Ekki hefur reynst unnt að halda öllum vöruhúsunum virkum. Evrópska Vöruhúsinu var nýverið afritað og lokað og einungis hið íslenska Vöruhús tækifæranna sem er í fullum rekstri undir hatti U3A Reykjavík sem, eins og allt starf U3A samtakanna, er unnið í sjálfboðavinnu með sjálfstæða stjórn.