Sveigjanlegt nám er stór kostur við Háskólann á Akureyri. Fjölbreyttar og nútímalegar kennslu- og námsaðferðir eru notaðar við miðlun námsefnis. Allt grunnám er í boði sem sveigjanlegt nám. Það þýðir að nemendur þurfa ekki endilega að vera búsettir á Akureyri heldur koma í háskólann í sérstakar námslotur þar sem megináhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður. Allir fylgja sömu námskránni og námskröfur eru þær sömu.
Í námslotunum gefst þér tækifæri til að hitta kennara, samnemendur og annað starfsfólk háskólans og tengjast enn betur háskólasamfélaginu þínu. Þess er krafist að nemendur mæti í loturnar og taki virkan þátt.
Rekkar og hillur: