edX-Okeypis-fjarnam-1200x630
edX-100x100

Ókeypis fjarnám í fremstu háskólum heims

edX

Engar upplýsingar um samfélagsmiðla
Lýsing:

Allir þeir sem kunnum ensku hafa aðgang að netnámskeiðum á öllum sviðum menningar, vísinda og tækni, fræða og lista hjá fremstu háskólum heims í gengum kennsluveituna edX. EdX er upphaflega samstarfsvettvangur Harvard, MIT og Berkeley háskóla í Bandaríkjunum sem komið var á fót árið 2012. Síðan þá  hafa bæst við fjölmargir samstarfsaðilar svo sem háskólar víða um heim, söfn, alþjóðastofnanir og í dag eru 120 samstarfsaðilar að EdX og bjóða upp á 2.800 námskeið. Þátttaka í námskeiðunum er yfirleitt alltaf endurgjaldlaus en ef  þátttakendur vilja taka próf og fá skírteini þarf að greiða hóflegt gjald fyrir. Mörg námskeiðanna eru hugsuð sem framlag til endur- og símenntunar til að styrkja fólk í starfi og mæta ákalli vinnumarkaðarins um síaukna og breiðari þekkingu. Til að gera þátttöku í námskeiði enn skemmtilegri og búa til hvata er upplagt að velja sér góðan «skólafélaga» úr vinahópnum til fara með í gegnum námið.

Rekkar og hillur:

Færni:
nám og fræðsla
Staðsetning
Skip to content