Lýsing: Hjálparstarf kirkjunnar er sjálfseignarstofnun sem sinnir mannúðar- og hjálparstarfi í nafni íslensku þjóðkirkjunnar. Sem kirkjutengd stofnun nýtur Hjálparstarfið þeirrar sérstöðu að byggja á grasrótarstarfi í nærsamfélaginu en meginmarkmið eru bætt lífskjör þeirra sem búa við fátækt og að mannréttindi séu virt.
Í starfinu felst þróunarsamvinna og mannúðaraðstoð á alþjóðavettvangi, aðstoð við fólk í félagslegri neyð á Íslandi, fjáröflun og fræðsla um starfið, gildi þróunarsamvinnu og mannúðar- og mannréttindamál.
Related