Lýsing: Tryggingastofnun annast almannatryggingar, þ.m.t lífeyristryggingar. Að auki annast Tryggingastofnun félagslega aðstoð til einstaklinga sem eiga rétt á slíkri þjónustu og greiðslu lífeyristrygginga og félagslegrar aðstoðar.
Allir sem hafa verið löglega búsettir á Íslandi hér er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga í ákveðinn tíma verða sjálfkrafa aðili að íslenska almannatryggingakerfinu, óháð þjóðerni og telst tryggður. Hins vegar verða þeir að uppfylla tilteknar aðstæður til að öðlast rétt á bótum, t.d vegna aldurs, fötlunar og búsetutíma. Tekjur og fjölskylda geta einnig haft áhrif á réttindi.
Related