Náttúrunýting og umhverfisfræða
Landbúnaðarháskólin Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands er mennta- og rannsóknastofnun á sviði náttúrunýtingar og umhverfisfræða. Skólinn býður upp á fjarnám í flestum námsgreinum háskóladeilda. Allir fyrirlestrar í staðnámi eru teknir upp og fjarnámsnemar vinna öll sömu verkefni og staðarnemar. Skyldumæting er í verklegum vikum en að öðru leyti er engin mætingarskylda í fjarnámi.
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur mikla sérstöðu meðal háskóla hérlendis. Þessi sérstaða felst fyrst og síðast í viðfangsefni skólans sem er náttúra Íslands – nýting, viðhald og verndun. Viðfangsefni kennslu og rannsókna við LbhÍ er því landið og það sem á því lifir. Á stundum er sagt að LBHÍ sé Skóli lífs og lands sem er réttnefni.
Skólinn er lítill og það markar honum sérstöðu meðal háskóla á Íslandi. Andrúmsloft kennslunnar er persónulegt, félagslífið er öflugt og rík hefð er fyrir því að nemendur vinni sameiginlega að úrlausn verkefna bæði innan skólans og utan. Deildir LBHÍ eru staðsettar á Hvanneyri, Reykjum í Ölfusi og á Keldnaholti í Reykjavík. Á Hvanneyri gefst nemendum kostur á að búa á nemendagörðum sem bjóða upp á húsnæði sem spannar allt frá einstaklingsherbergjum upp í fjögurra herbergja íbúðir. Í þorpinu er góður leikskóli og yngri deildir grunnskóla.
Related
Rekkar og hillur: